Hollar eru hestanytjar

Hollar eru hestanytjar,

Útvarpsþáttur í umsjón Svanbjörgu H. Einarsdóttur

http://dagskra.ruv.is/nanar/12576/

Posted in fréttir | Leave a comment

Hesturinn notaður til reiðar og mjaltar

Fornleiðafræðingar hafa afhjúpað fyrsta þekkta merki um að hestar voru tamdir af mönnum. Uppgötvunin bendir til þess að hestum var bæði riðið og mjólkað.

Vísindamennirnir hafa rakið uppruna hestsins aftur til Botai menningu Kasakstan fyrir 5.500 árum síðan. Þetta er um 1.000 árum áður en haldið var og um 2.000 árum áður en hestar eru þekktir fyrir að hafa verið í Evrópu.

Niðurstöður þeirra benda eindregið á það að hestar voru upphaflega tamdir, ekki bara til reiðar, einnig til að veita mat, þ.m.t mjólk.

Notuð var ný aðferð af blóðfituleifagreiningu og vísindamenn greindu Botai leirmuni og fundu snefil af fitu úr kaplamjólk. Hryssumjólk er enn drukkinn í Kasakstan, landi þar sem hrossarækt hefur langa hefð, og er hún yfirleitt gerjuð í örlítið áfengan drykk sem kallast ‘koumiss’. Þó að vitað var að koumiss hafði verið framleidd um aldir, þessi rannsókn sýnir að frá því að maðurinn hélt hross í hjörðum hefur hesturinn verið notaður á þennan hátt !

Hér er greinin á ensku:

http://www.sciencedaily.com/releases/2009/03/090305141627.htm

Posted in fréttir | Leave a comment

update

Til sölu

ný hross á söluskrá !

Für unsere Leser aus Deutschland:

Icelandic horses for sale_deutsch !

http://kaplamjolk.is/ræktun/folold-2011/

Posted in fréttir | Leave a comment

Hrímfaxa hleypt í hryssurnar

Hrímfaxi var sleppt í hagan 17.mai 2011 og er að þjóna um 13 hryssur og stendur sig vel. Við erum byrjuð að undirbúa mjaltir, koma vagninum niður í mýri og byggja rétt, þá hefst undirbúningurinn á hryssunum, venja þær við að koma upp á vagninn, þetta eru allt nýjar hryssur og ekki vanar mjöltum eins og okkar gömlu. Það er daglegt eftirlit með Hrímfaxa og hópnum, allt gengur vel, folöld og mæður þeirra allar sprækar, eitthvað á eftir að koma af folöldum og við bíðum spennt, við getum sennilega farið að mjólka um miðjan Júni !

Það verður annað gangmál hjá hestinum eftir Landsmót fyrir frekari upplýsingar hafið samband í tölvupósti: kaplamjolk@kaplamjolk.is

Posted in fréttir | Leave a comment

Sjonni frá Selfossi

♫ Sjonni frá Selfossi ♪, stuðningsaðili og lukkudýr íslensku söngvakeppnisstrákana ! ♪ ♫

Tekið var á móti honum þegar úrslitin voru klár að Ísland komst í úrslitakeppnina ! Áfram Ísland ! ♥

Þessi litli kútur kom í heiminn rétt á eftir tilkynningunni að Ísland hafi komist áfram í Eurovisionkeppninni, og var það auðvitað aldrei spurning um neitt annað nafn en Sjonni sem kom til greina. Sjonni er undan Stjörnudísi frá Ægissíðu III (jarpskjótt) og Fenri frá Ásgarði (brúnlitföróttur), ræktandi af þessari dúllu er Mona Kensik frá Selfossi.

Fleiri myndir hér

Posted in fréttir | Leave a comment

Hrímfaxi verður í mjaltarhópnum

Stóðhesturinn í mjaltarhryssunum hefur verið valin, það verður Hrímfaxi frá Röðli.

Hrímfaxi frá Röðli er líklegast arfhreinn vindóttur, fallega skjóttur, stór, vöðvamikill með fallegar hreyfingar. Það verður spennandi að fylgjast með afkvæmunum undan honum.

Velkomið er að koma með hryssu undir hann í sumar, ég minni eindregið á að það væri frítt undir hestinn og frí hagabeit ef hryssan væri með folaldi og hún myndi bætast við mjaltarhópinn hjá okkur !

Fyrir frekari upplýsingar: kaplamjolk@kaplamjolk.is eða 8472924 (Hekla)

Posted in fréttir | Leave a comment

Update – auglýsingar

Uppfærsla – auglýsingar

Posted in fréttir | Leave a comment

Við óskum öllum Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári !

We wish all of you Merry Christmas and a happy new year !

Wir wünschen allen Frohe Weihnachten und einen guten rutsch ins neue Jahr !

Posted in fréttir | Leave a comment

Hryssur óskast í mjaltir !!!

Við óskum eftir þægum og yfirveguðum folaldshryssum fyrir næsta sumar í mjaltir !

Það er æskilegt að þær séu á milli 10 -15 vetra gamlar (mega vera yngri) og séu bandvanar. Hryssan ætti að vera köstuð í Maí/Júní. Við bjóðum upp á fría beit og    stóðhest í allt  sumar ! frá Mai til Ágúst.

Það fer vel um hryssurnar og folöldin og eftirlit er á hverjum degi, þær fá aðgang að vatni, steinefni og salti. Mjaltir fara fram 2-3 á dag en þær fá frí tvisvar í viku.  Folöldin eru tekin undan á daginn í þrjá tíma, eftir mjaltir fá folöldin að fara aftur til móður sinnar í klukkutíma til að koma í veg fyrir júgurbólgu. Þetta er endurtekið    2-3 á dag. Um kvöldið  fá þau síðan að vera hjá móður sinni fram á næsta dag.

Við höfum núna verið að mjólka í tvö ár og við getum tryggt eðlilegan þroska á folöldunum og þau eru fljót að læra að fara í leikskólan á daginn. Við stillum okkur alveg eftir  folaldinu og mjólkum ekki hryssuna fyrr en folaldið er byrjað að borða sjálfstætt með ! Flest folöld byrja á að kroppa gras 1 mánaða gömul. Hryssurnar fá reglu á mjaltirnar og  ganga sjálfviljug á mjaltarbásinn og mjólkurflæðið eykst með mjöltum.

Ef það er áhugi fyrir að lána okkur hryssur næsta sumar og fá fría beit og stóðhest í staðinn biðjum við ykkur á að hafa samband við okkur í tölvupóstfangi: kaplamjolk@kaplamjolk.is eða í síma 8671573 (Hermundur) & 8472924 (Hekla)

Posted in fréttir | 1 Comment

Eitt folald eftir !

Eitt folald eftir á söluskrá, gullfallegur brúnn drengur hann Kilian. Hann er undan Sýn frá Voðmúlastöðum , Sýn er undan gæðingnum Hrafni frá Holtsmúla.

Tryggið ykkur úrvals reiðhest og góðan keppnishest fyrir framtíðina !

Hann fer á 80.000 kr.

Posted in fréttir | Leave a comment